55. uppáhaldslögin mín árið 2003 (þó sum séu ekki innan við árs-gömul)
55. Missy Elliot - Gossip Folks
54. Fischerspooner - Invisible
53. Panjabi MC - Mundian To Bach Ke
52. Gus Gus - Dance You Down
51. Queen Adreena - Desert Lullaby
50. Radio 4 - Certain Tragedy
49. Junior Senior - Move Your Feet
48. Belle & Sebastian - Step Inside My Office Baby
47. Sonic Youth - Swimsuit Issue
46. Shellac - Mama Gina
45. Mínus - Boys Of Winter
44. The Datsuns - Harmonic Generator
43. Gaur - Jetpack
42. Kings of Leon - Trani
41. Trabant - Lady Elephant
40. The Raveonettes - Beat City
39. The Sounds - Seven Days A Week
38. The Ramones - Now I Wanna Sniff Some Glue
37. The Mars Volta - Roulette Dares (The Haunt Of)
36. The Blood Brothers - Every Breath Is A Bomb
35. Justin Timberlake - Cry Me A River
34. Sonic Youth - Purr
33. Radiohead - Wolf At The Door
32. Sick Lipstick - Thighmaster I'm Your Master
31. The Libertines - Boys In The Band
30. The Sounds - Mine For Life
29. The Thrills - Deckchairs & Cigarettes
28. The Blood Brothers - Fucking's Greatest Hit
27. Electric Six - Danger, High Voltage!
26. The Flaming Lips - Yoshimi Battles The Pink Robots
25. Radio 4 - Dance To The Underground
24. Yeah Yeah Yeahs - Date With The Night
23. White Stripes - Seven Nation Army
22. Kings of Leon - Red Morning Light
21. Beck - Get Real Paid
20. Rúnk - Wall Street
19. The Eighties Matchbox B-Line Disaster - Psychosis Safari
18. Mínus - Romantic Exorcism
17. Muse - Space Dementia
16. Fischerspooner - Emerge
15. The Strokes - Reptilia
14. Outkast - Hey Ya!
13. The Vines - Outtathaway!
12. The Thrills - Santa Cruz (You're Not That Far)
11. White Stripes - Black Math
10. Björk - You've Been Flirting Again
9. Liars - We Live NE of Compton
8. The Eighties Matchbox B-Line Disaster - Chicken
7. Beck - Debra
6. Radiohead - We Suck Young Blood
5. Rúnk - AtlavÃk '84
4. The Rapture - House of Jealous Lovers
3. The Raveonettes - Do You Believe Her
2. Muse - New Born
1. Liars - Mr. You're On Fire Mr.
10 bestu p-beikon pistlar 2003
#10. 8. október
Venjulega þegar maðr biður um pylsu fær maður brauð með steiktum lauk (ég fæ mér ekki hráan) neðst, tómatsósu, remúlaði, pulsu og svo sinnep ofaná.
Í dag fór ég á lækjartorg og ég fékk pylsu sem var öll í ólagi. Fyrst kom brauðið, svo remúlaðið og svo sinnepið. Næst kom steikti laukurinn svo pulsan og síðast tómatsósan ofan á.
Þessi pylsa var ógeðsleg. Tómatsósan og steikti laukurinn voru ekki blandaðir saman.... Afgreiðslustelpuni hefur fundist það sniðugt að setja tómatsósuna ofaná og ahitt neðaná því sumum finnst gott að hafa tómatsósu ofaná líka það er nebblega „katsjið“. Tómatsósan verður að vera neðst. Hún bara verður. Stelpan sem vinnur á lækjartorgi er bara ööömurleg... Hún lokaði líka sjoppuni til að fara í bóbó! Bjulla.
Plötur:
Beck - Sea Change
Let the window down, feel the moonlight on your skin
Beck - Midnite Vultures
Mmm tweak my nipple, champagne and ripple, shamans go cripple, my sales go triple...
Maður vikunnar: Beck
#9. 9. ágúst
Bevar Christiania
O O O
Ég fór í tilraunina í dag og skoðaði hana almennilega. Vá hvað þetta er fallegt landsvæði! Ég var búinn að ímynda mér Kristjaníu sem virkilega skítugt pleis, sona fullt af múr húsum og einhverju og djönkís allstaðar og eikkað bjull og sona.... En svo er þetta bara heví kósí staður! Maður labbar þarna inn um hliðið og þar er stór markaður sem blasir við manni, fólk að selja allskonar hluti frá pappírum til bongó tromna... Ég keypti mér svona afrískt klukkuspil, rosalega fallegúr hljómur í þessu. Svo heldur maður áfram og labbar hina margrómuðu götu, Pusherstreet þar sem dílerar velta milljónum á dag og lagt er á borð allskonar jónur og hasstegundir, plöntur og jú neim it... Ekkert annað dóp, kristjaníu búar eru virkilega á móti hörðum vímuefnum... "Say no to hard drugs" slagarinn fannst víða um bæinn. Þegar maður er kominn framhjá götunni og hassbörunum kemur maður inn í svæðið þar sem fólkið býr, þar er leikskóli, leikvöllur, hjólabrettagarður, baðhús og allskonar almenningsþjónustu staðir. Aðeins lengra fer maður yfir brú sem fer yfir þetta fallega, fallega fljót og þaðan sést fallega náttúran sem er þarna. Svo gengur maður meðfram stíg (ath. það er aðeins ein göngugata í kristjaníu, öll umferð bifreiða er bönnuð - hentugt í landi þar sem allir hjóla) og þar eru öll húsin. Fólk byggir húsin sín sjálf eins og það vill... Ekkert svona skipulag. Ekkert hús er eins og fólkið málar þau á allskonar vegu... Ótrúlegt andrúmsloft þarna, fólkið þarna er svo friðsælt, hundarnir eru eins og kettir, liggja um og láta alla í friði... samt eru þeir villtir. Og svo er líka bara frábært fyrir lögguna að hafa allt hass á einum stað. Mér finnst asnalegt hjá dönskum yfirvöldum að leggja niður þessa "félagslega tilraun" og vil ég bara vitna í texta Joni Mitchell:
They paved paradise and put up a parking lot.
A pink botique, a hotel and a swinging hot spot.
Ég hvet fólk að kynna sér þetta landsvæði og vernda það.
Kvöldið var svo bara allsherjar fyllerí. 2 bjórar f. 30 á Moose, Tequila á 10 á L.A. Bar, 10 staup á 100 á Basement og Tvöfalt líkjör á Vertigó.
Hvað er að gerast/Crazy feet dansin var dansaður af mikilli innlifun og þá einnig diskódansinn góði. Vil ég þakka götuleikhús fólki fyrir að opna augun mín fyrir skemmtilegum hópdönsum.....
Kvöldið endaði á Metróstöðinni í Kristjánshöfn þar sem við tókum lest til baka.... Á 0700ðasta tímanum fórum við heim.
Plata dagsins:
Joni Mitchell - Hits
You're a mean old daddy but I like you...
#8. 14. maÃí
Hahahahahahahaha ha ha haha hahaha ha ha ha?
Núna ætla ég að byrja að blogga... herma eftir öllu þessu fólki sem hefur ákveðið að láta skoðanir koma fram á almannafæri og láta vita af sínu daglega amstri - eða sínum daglega hamstri..... Ég heiti Pétur. Ég er fæddur á Íslandi og uppalinn í Bretlandseyjum. Svo var ég endurmótaður á Íslandi.
Ég er búinn í prófum!!! Það var hrikalega gaman í svona tvo klukkutíma. Svo komst ég að þeirri staðreynd að það er gjörsamlega ekkert að gera í þessari viku milli prófloka og staðfestingadags.... nema að djamma, en ég gerði það ekki í gærkveldi þar sem flestir vinir mínir eru ennþá í prófum. Ég sit bara og væli heima hjá mér...
Ég horfði samt á Matrix í gær .... alveg hrikaleg tilhlökkun í næstu mynd. Hún er samt örugglega leiðinleg - svo mikil tilhlökkun í myndina að maður á pottþétt eftir að verða fyrir vonbrigðum.
Ég á ekki daglegan hamstur.
Það sem ég ætla að gera í sumar:
Skapa tónlist.
Hlusta á tónlist.
Kaupa tónlist.
Lesa heimspeki.
Vinna í götuleikhúsinu.
Grilla hamborgara
Reyna að eyða ekki of miklum pening
Redda mér miða og flugmiða á Radiohead tónleika einhversstaðar í veröldinni
Hanna föt
Gera listaverk
Gera eitthvað meira skapandi
#7. 19. maí
Ég taldi dósir og flöskur í ruslapoka í dag - djöfull var það leiðinlegt 6 svartir ruslapokar og ég þurfti að telja oní þá. Fékk ekki einu sinni borgað fyrir það, fór með gömul dagblöð líka í sorpu - fæ engar þakkir. Ég ætla að lögsækja pabba minn.
Ég fór líka að leita af vinnu. Ítrekaði í Aktu Taktu, fór í Skífu og Japis, Bónusvídeo og Dominos, 11-11 og 10-11. Og Ikea. Og Fjölskyldu- og Húsdýragrðinn. Allt fullt nema á Dominos og Aktu Taktu. Ég mátti bara sækja um á netinu hjá Dominos. Það væri örugglega gaman að svara í símann hjá Dominos. Bulla í fólki. Maður væri samt líklega rekinn. Það er samt miklu skemmtilegra að bulla í afgreiðslufólki í símanum hjá Dominos.
Kúnni: Ég ætla að fá stóra pizzu með pepperoni, skínku og sveppum - mikið af sveppum, alls ekki gleyma þeim
Afgr: Já, má bjóða þér Brauðstangir og Ískalda Kók með þessu?
Kúnni: Jú takk, en ekki gleyma sveppunum - þeir eru lang mikilvægastir
Afgr: Allt í lagi, það er þá 15 tommu pizza með pepperoni, skínku og miklum sveppum, brauðstangir og 2l. Kók
Kúnni: Akkúrat - ekki gleyma sveppunum
Afgr: Þetta eru þá 2630 kr. og mátt sækja á Skúlagötu eftir 20. mín - hálftíma.
Kúnni: Já takk - og mundu - alls enga sveppi!! *skella strax á*
Karlinn í 10-11 á Hverfisgötu var mesti blumbi sem ég hef séð. Hann sat inni í kaffistofu og breyttist æi hund þegar hann talaði við mig - urraði og sagði NEI það er ekkert laust. Ég þakkaði fyrir mig kurteisislega og svo beit hann af mér löppina - ég þurfti að fara á slýsó á eigin bíl og láta græða á mig nýja löpp. Það verður ekki til í gervilöpp í nokkurn tíma svo að núna er ég með tréfót.
Plata dagsins er Blur - Think Tank
We got a file on you!!
Að telja dósir og flöskur í poka er mjög leiðinlegt, þessi diskur hélt mér gangandi.
#6. 17. maí
Jamm, það er búið að vera heví
Hví er fólk að taka þátt í svona raunveruleikaþáttum?? Þeir eru ekki einu sinni raunverulegir... Hvaða manneskja færi að velja sér mann úr 20 manna hópi sem henni var útvegaður til að giftast? Ég myndi aldrei meika að taka þátt í svona, einhver kona að eyðileggja á manni tilfinningarnar fyrir framan milljónir manna með því að velja hinn gaurinn, kannski er hinn gaurinn ekki einu sinni að fíla hjónaband meðan aðrir væla yfir hversu fullkomin þessi kona sé, raunveruleika þættir eru ekkert grín... þetta er stóralvarlegt mál, ég stofna til fjöldamótmæla fyrir framan Bandaríska sendiráðið kl: 03:47 aðfaranótt mánudags 19.maí - Niður með Bachelor! Fleiri teiknimyndir!!
Hvað varð um allar stuttu teiknimyndirnar sem voru alltaf á milli sjónvarpsþátta? Litlu leirkarlarnir sem gátu breytt sér í hvað sem er... og strikið sem talaði í bullmáli....
BLEIKI PARDUSINN!!!!! snökt
Í gær var haldið í heljarinnar ferð í sumarbústaðinn minn og próflokum fagnað með pompi og prakt.
Poppin' Kristel við mæ hómís
Það komu nokkrir kvennskælingar til okkar og gáðu hvort það væri „brjálað partí“ við sögðum þeim að koma bara oní pott, en þau vildu það ekki - það er ekkert partí án kvennskælinga í heitum potti! eins og enginn orti.
Svo vaknaði maður við heví læti í ónefndum úlfi sem hótaði að hella fötu af vatni yfir mann ef maður kæmi ekki í brennó. Það var öskrað á hann af ógurlegum krafti og skaust úlfurinn upp á klett og ýlfraði eins og hann ætti lífið að leysa.
Svo fengum við pönnukökur eða „crépes“ í morgunmat og einnig mjög ferska og exótíska ávexti... kreizí sjitt æ tell jú.
Svo var farið í Eden á leiðinni til baka og rifist um hvað grænmeti væri í raun og veru.
Svo bauð ég Bóbó bóbó.
Plata dagsins í gær var The Ramones - The Ramones
Hey, ho, let's go!!
en í dag er það Beck - Mutations
I've been looking for my shadow, but this place is so bright and so clean
#5. 10. júní
Pabbi ætlar núna að blogga....
Hann er núna hættur við.
Hail To The Thief er frábær plata og er hún plata vikunnar (ath. ekki dagsins) ekki nógu heilsteypt en þetta eru einhver beztu radiohead lög sem ég hef á ævinni kynnst og þá sérstaklega We Suck Young Blood, Sail To The Moon og Wolf At The Door.... Svo er special edition pakkningin svo helvíti flott, svona eins og landakort. Bara helvíti Jónas.
Nekt.
Nekt er miskilinn hlutur.
Ég tók eftir því hvað margir stoppuðu við myndina á austurvelli, af núdistunum... Fólkið stoppaði heldur ekkert smá lengi, hinar myndirnar voru alveg jafn fallegar, litasamsetningin og listinn er mjög lík í öllum myndunum, en afhverju þurfti fólkið að horfa á geirvörtur og typpi svona helvíti lengi í staðinn fyrir alla litlu hlutina sem fórust á hvirfilvinda myndinni og tréin og akrarnir og svona.... upp úr þessu spratt mjög merkileg samræða milli okkar Írisar (Iris the Virus) um hversu miskilin nektin er. Fólk stoppar svo rosalega oft við myndir af nöktu fólki þegar það skoðar tímarit og svona og finnst það ægilega merkilegt. Þegar ég skoða tímarit vil ég sjá litadýrð, fyndnar sögur, góðar pælingar og list, en ekki endilega nekt... þótt að nekt sé flott frá listrænu sjónarhorni þá má ekki ofnota hana, pervertar skapast, klámbúllur og þessi menning er orðin frekar óvænleg... fyrir nokkrum öldum var nekt notuð í list og bókmenntum til að gera ástríðuþrungnar senur/myndir áhrifameiri, nekt er mikill hluti af ást og það verður að varðveita hana svolítið. Hún er ekki dónaleg, ekki sjokkerandi, við erum öll með líkama og það er ekkert dónalegt við hann nema þegar hann er misttúlkaður, misnotaður. Niður með klám, upp með rómantík!!!!
Frænka mín hún Steinunn fremur blogg hér
Plata vikunnar:
Radiohead - Hail To The Thief
Don't question my authority or put me in a box!
#4. 5. ágúst
Ég vaknadi í Reykjavík og kláradi ad pakk öllu helvítis dótinu sem ég aetladi ad taka med eftir langar ákvardanir. Afi var búinn ad lána mér bílin sinn svo ad ég gaeti plöggad öllum sídustu plöggunum. Aldís og Rósa voru nebblega búnar ad bidja um snúda úr Björnsbakaríi og Súkkuladimöffins úr Bakarameistaranum. Og Appelsín. Gaeti ekki verid meira vesen en vid Erla nádum ad troda kassa med 4 snúdum og 4 möffins í adra ferdatöskuna. Vid ákvöddum ad kaupa bara appelsín í fríhöfninni. Jaeja, ég skila svo afa bílnum og hann keyrir okkur í flugrútuna (aetti hún ekki ad fljúga?) Rútan fór einhverja heví krókaleid í gegnum hafnafjörd og eikkad... mjög tilgangslaust en Fever To Tell passadi akkúrat inní ferdina... nokkud gott tad, ha? Í fríhöfninni var svo bara til ein appelsín dós, lítil. Vid keyptum hana samt. Fengum svo auka í flugvélinni. En tar var vondur matur eins og venjulega. Einhver gúmmíkjúklingur. Svo er tad Kastrup, svo Hovedbane og svo Serridlegsvej en tar gistum vid Erla flest kvöld. Vid fórum svo beint á Reventlowsgade tar sem thaer bjuggu, Aldís og Rósa. Vid bordudum snuda og möffins og skiptum milli okkar 3 litlum appelsín dósum. Beint ad djamma. Fórum á Moose tar sem ad hitagrádan er haerri tala en bjórverdid. Samt gód tónlist.
Eftir hitann á Elgnum fórum við öll á Sam's bar sem er sona karókí staður. Þar hittum við náunga sem sat við hliðina á okkur allan tímann og drakk bjórinn sinn og brosti og sona. Sagði eiginlega ekkert. Fyndinn gaur. Það voru Íslendingar þarna sem buðu okkur að sitja hjá sér þegar þau heyrðu okkur syngja við lagið við Always með Bon Jovi á Íslensku en það var eikkað samansafn af bjullum og blumbum... Við sungum Do You Know The Way To San Jose og Girls & Boys með einstakri innlifunn. Svo fórum vid Erla bara heim... gód byrjun á gódri ferd.
Plötur:
Yeah Yeah Yeahs - Fever To Tell
The Eighties Matchbox B-Line Disaster - Horse of the Dog
Joni Mitchell – Hits
#3. 19. nóvember
gaaahh!!! hvað er að gerast? Er Pétur að blogga? Ha? hvaðahvaða? Er ekki í lagi? Hefurðu tíma? Bíddu, áttu ekki að vera í Bosníu?
Ahem.
Ég afsaka.
Músaka.
Múfasa.
Que pasa?
Pasta.
Rasta.
Bob Marley.
Ef ég ætti pening....
myndi ég eiga nord electro 2.
Ef ég ætti nord electro 2....
væri Gaur skemmtilegri hljómsveit.
Ef Gaur væri skemmtilegri hljómsveit....
myndi vera ennþá meira að gera hjá mér og poppstjörnunni.
Ef það væri ennþá meira að gera hjá mér og poppstjörnunni myndi ég fá taugaáfall og hætta í hljómsveitinni og stofna mína eigin litla hljómsveit með sjálfum mér og Júlíu, kaupa gítar læra á hann og verða næsti Jack White og við yrðum heimsfræg og þá myndi vera aftur orðið alltof mikið að gera og ég myndi fá annað taugaáfall og þá myndi ég læsa mig inni með tölvu og semja raftónlist í svona tvö ár, koma út úr skápnum, byrja með frönskum danstónlistar pródúser, fara útí kókaín og fara á hausinn og tek síðan óverdós og dey. Nokkrum árum seinna finnast þessar týndu raftónlistarupptökur og ekkjan/ekkinn franska/franski myndi reyna að gefa þetta út en Júlía myndi fara í mál við hann því að hún segist eiga höfundarréttinn og það endar með því að hún verði drepin af Ísraelsku leynilöreglunni vegna ástarsambands hennar við hinn mikla leiðtoga Palestínu. Þá er þetta efni gefið út og 20 árum seinna verður Demó diskurinn sem Gaur bjó til fyrir stuttu, á uppoði og verður keypt á margar milljónir, og ég verð að tónlistar-goði en nokkrum árum síðar ferst heimurinn allur vegna stóra rafsegulskrýmslins sem étur alla síma sem hann finnur og þá verða náttúrulega bara símar sem stjórna öllu, tölvur verða úreltar og allir munu deyja því að símarnir skapa allt sem til er vegna nýrrar laga um að það eigi ekki að borða lífverur þannig að símarnir búa þær til í staðinn og við étum svona rafsegul-kjöt. Eftir að símarnir allir farast mun fólkið allt springa og þá kemur dómsdagur og dvergar munu dansa í tunglinu þar sem verðu heljarinnar veisla fyrir alla þá sem eiga ekki síma....
Niðurstaðan að þesarri sögu er:
Ekki borða ost, annars verðurðu að dvergi.
Plötur, Plötur, Plötur:
Radio 4 - Gotham!
Zero 7 - Simple Things
Massive Attack – Mezzanine
#2. 22. ágúst
Ég skal bara segja ykkur að ferðin mín til svíþjóðar var bara frekar leiðinleg... Ég bara nenni ekkert að vera segja frá. Bara nokkuð bjullí fílingur og svona. Ok, jú... ég segi sona pínu frá....
Fimmtudagur 14. Ágúst
Vaknaði alltof snemma til að fara í flugvél.... aftur. Þegar ég hafði lent þurfti ég að bíða eftir henni Ásu sem var fylgdarkona okkar Ernu (Samstarfsmaður minn frá því í sumar) þarna úti en hún var að koma frá Eistlandi... Ég keypti mér Fanta Lime og sona samloku eins og frá Júmbó.... sem var smurð. Ojjjjjj bara. Þykkt lag af ógeðslegu smjöri. Ég gæti gubbað. Svo lögðum við af stað í bæinn... drösluðumst með töskurnar okkar út um allllt. Rosalega bjullí bær. Ég fékk kötbullar í kvöldmat.... Svo fékk ég að gista á hóteli en þær í einhverju koti lengst upp í sveit sem bauð uppá örrugglega besta útsýnið í Stokkhólm... En ég var nálægar bænum... Það voru síðan 3 sænsk/finnskar Jóhanna Guðrúnir í sama prógrami og við en leiðbeinandi þeirra var óléttur þungarokkari en hún var eina ekki bjullan á staðnum. Einnig voru 2 færeyingar sem voru einnig bjullí og sérstaklega leiðbeinandin... Svo var náungi þarna sem hét Torvald og sonur hans Johannes sem leit alveg eins út og Högni Egilsson.... Ég held að Andri sé bara impostor.... Hinn raunverulegi Andri Egilsson býr í Suður-Stokkhólm og svarar við nafninu Johannes.
Plata Dagsins: Radiohead - Hail To The Thief
Don't want the loonies taking over
Föstudagur 15. Ágúst
Ég var túristi þennan dag. Það var ógeðslega leiðinlegt. Það er svo leiðinlegt að vera í stórum hóp og horfa á eikkað sem ein manneskja segir að sé ógeðslega flott og maður fær kannski ekki að sjá nógu vel og maður fær ekki kannski að skoða það sem að þér, persónulega finnst flott.... Ég ætla aldrei aftur í sona gædid túr... Ömurlegt. Þegar ég fer til útlanda þá vil ég sjálfur fara og skoða hluti og vera rosalega anti-tourist eikkað, helst ekki líta á kortið því það er svo gaman að villast á stöðum sem maður þekkir ekki... þá fer maður að þekkja þá betur og rata og sona... Það var mjög pirrandi að allir á staðnum töluðu sænsku. Nema ég og Erna og við hlustuðum á margan fyrirlesturinn og skildum ekki baun... sona annað hvert orð en maður náði aldrei að búa til eikkað samhengi.
Plata Dagsins: Yeah Yeah Yeahs - Yeah Yeah Yeahs (Bang!)
Shit, I got a gallery in New York!
Laugardagur 16. Ágúst
Ðö big dei... Við Komum fram á Sergelstorgi um morguninn. Þetta torg getur haldið ca. 70.000 manns í allra mesta lagi. Sem betur fer voru ekki nema kannski 500 að horfa... annars hefði maður stressast upp eins og mófó. Þarna var svo svið og risaskjár og massíft hljóðkerfi. Okkur gekk samt voða vel, vorum voða flott og falleg við undirspil Múms og Stefáns Islandis og þar á milli sungum við. Finnsku bjullurnar sungu einhver 2 léleg popplög - sem þær "sömdu" sjálfar og dönsuðu með en sýndu enga helvítis innlifun... þær kunnu sona alveg að syngja og að hreyfa mjaðmarnar en þær kunnu ekkert að performa... Þær höfðu líka verið í einhverjum spes artist skóla... Ég hefði nú gefið þeim lágmarkseinkunn... Bjullur.
Eftirmiðdaginn fengum við að fara á tónleika. Ég sá Good Charlotte, Big Brovaz, Einhverjar sænskar bjulluhljómsveitir og Danskan Michael Jackson lookalike... þá gafst ég upp... og missti víst af bestu hljómsveitunum - Outlandish og The Rasmus... en þær voru örrugglega ekkert sérstakar.... Bjullí....
Um kvöldið fengum við túrgæd af einhverju balli sem var í gangi þarna í Kulturhuset fyrir krakka á aldrinum 15-18... Það var einn salur fyrir RnB og Hipp-Hopp tónlist, einn salur fyrir Topp 20 tónlist (RnB og Hipp Hopp) og svo einn reif-salur... BJULLÍ!!!! Mér leið svo illa þennan dag ég barasta gæti hafið kallað á Eyjólf hvenær sem er... En við vorum svo miklir túristar að við vorum túristar á balli.
Plata dagsins: Blumbarnir - Bjullur á Báli
Nærbuxna tjekk, nærbuxna tjekk!!! Je, beibí....
Sunnudagur 17. Ágúst
Allir fóru snemma þennan dag... nema við. Ása og Erna fóru að versla og sögðu "við hittumst á Sergelstorgi klukkan 17"- klukkan var 12.... Ég náttlega bara... ömm, ha, ooook....? Og er skilinn eftir áður en ég gat sagt H&M er ofmetin... Ég bara vafra um... fer í plötubúðir... peningalaus, finn rosalega fínan markað... fer á netið,sit í klukkutíma á McDonalds og enda á Sergelstorgi klukkan fjögur og bara les Radiohead blaðið mitt... rosalega eikkað einn og einmanna... En þennan dag tók ég eftir hvað Stokkhólmur var bjullu-frí og áttaði mig á því að ástæða bjulluleikans var fjöldi sænskra sveitaunglinga sem sóttu þessa hátíð.... Ég verð að fara aftur einhverntíman og skoða bæinn almennilega... Því hér er mjög fallegt kvenfólk og góðar plötubúðir............................................................
.......................................................................................................................................................
Plata Dagsins: Velvet Underground - White Light/White Heat
She would kiss him and maybe they would see a movie. If only he hadn't thought of it before
Frábær fyrsti skóladagur! Alltof gott veður og alltof mögnuð stemning... Pulsur og Pepsi á góðu verði... Atli með sína góðu tónlist og bara fínasta stundatafla... Þetta ár verður gott!
Plata Dagsins: The Raveonettes - Whip It On
Wanna drink and drive, have some fun
Mig langar í:
Miða og flugmiða á Radiohead tónleika
Peninga
Meiri tíma
Stærra herbergi
#1. 8. nóvember
Sko, þessi færsla bara verður að vera líka á japönsku því það er besta tungumál í heimi.
それが世界の最もよい言語であるので一見は日本語に, このポストちょうどまたあるなる.
Það er mjög mikilvægt að bursta á sér tennurnar á kvöldin og á morgnana.
夕方と午前中あなたの歯にブラシをかけることは非常に重要である.
Ef þú gerir það ekki verður páfinn reiður.
あなたがそれをしなければ法皇は怒っている.
En allir vita það að þegar páfinn reiðist hrynur stjórnarkerfi Lybíu.
そして法皇が怒っているようになればLybia の議会はころぶことを皆は知っている。.
Það er ekki gott vegna þess að í Lybíu býr sjaldgæfasta dýr veraldar.
世界の最も危険にさらされた種がLybia に住んでいるのでそれはよくない.
Grænmetis-banana-apa-flugu-rottan.
野菜バナナ猿のはえのラット.
Hún gætir þess að enginn komist inn í ósýnilegu pýramídana í Kenyu.
それは誰もケニヤの見えないピラミッドに入ることができるそれへ見る.
Inn í einum pýramídanna býr hinn eini sanni Hótías, verndari samlokugerðarmanna, fæddur á 72. degi Grlpsink.
ピラミッドの1 つでは1 及びHotias しかのGrlpsink の72. 日に耐えられるサンドイッチメーカーの保護装置住んでいない.
Hann vann Idol keppnina árið 502 f.kr.
彼は502 キリストの前に星の調査の競争に勝った.
Núna megið þið sjá japanska textan á ensku:
Being to be the language where that the world is best, glance is in Japanese, this post exactly and, it becomes.
It is very important to use the brush on your tooth during evening and morning. If you do not do that, the legal emperor is gotten angry. If and it reaches the point where the legal emperor is gotten angry, as for the national assembly of the Lybia time. Thing is known as for everyone. It meaning that the kind where the world was exposed most most dangerously has lived in the Lybia, that is not good. Rat of growing of vegetable banana monkey. As for that you see to that it is possible to enter into the pyramid where no one Kenya is visible. At one of the pyramids the protection instrument of the sandwich manufacturer which withstands on the 72.th of Grlpsink only of 1 and Hotias you have not lived. He 502 Christ ago won the competition of investigation of the star.
Svo er hægt að fara fram og til baka í þýðingunum og það er aldrei eins skal ég segja ykkur
Plata dagsins:
Kings of Leon - Youth & Young Manhood
Lag vikunnar:
The Liars - We live NE of Compton